Það er nú fleira sem þarf að skoða....

Við strandveiðarnar.  T.d. eru smábátasjómenn sem eru að leigja frá sér kvóta á sama tíma og þeir stunda strandveiðar, fyrir það þarf að girða, ef að þetta á að snúast um nýliðun og atvinnufrelsi.

Það er því miður staðreynd að stæðstur hluti þeirra sem stunda þetta, eru aðilar sem búnir eru að selja kvótan sinn einu sinni eða jafnvel tvisvar, og í raun lítið hægt að segja við því, þar sem þeir ágætu menn fóru að lögum.  Hinsvegar á skilyrðislaust að girða fyrir þá gloppu að hægt sé að leigja frá sér kvóta á sama tíma og strandveiðarnar eru stundaðar.  Einnig eiga kvótaeigendur ekki að vera gjaldgengir í þetta nem kvóti þeirra sé undir ákveðnum mörkum og búið að veiða hann allan.

Því miður þá er nú með strandveiðarnar eins og með títt nefnda fyrningarleið Vg og Samf. að ekki er búið að hanna kerfi ðog skoða það almenilega þegar því er hleypt af stokkunum og því er þetta eins og þetta er hálfkarað klúður..

 


mbl.is Ójafnvægi á milli strandveiðisvæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þeir kalla þetta að gæta jafnræðis !

Jafnræðis við hvað ?

Oj barasta ......

Níels A. Ársælsson., 19.6.2010 kl. 11:27

2 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Í upphaf ferðalags skoðar maður kortið, leiðina á áfangastað og hvað ber að varast á leiðinni, ásamt því að virða fyrir sér áfangastað, Vinstri Grænir og Samfylking eru lögð af stað en rúðuþurkur og rúðupiss er bilað, kortið gleymdist heima og engin man hvað áfangastðurinn heitir....

Þannig eru nú þessar strandveiðar þessara ágætu flokka.....

Eiður Ragnarsson, 2.7.2010 kl. 09:30

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Það er erfitt að stilla þessu svona upp en engu að síður er ýmislegt til í því sem þú segir.

Þeð hefði átt að persónubinda á kennitölur einstaklinga strandveiðiæleyfin en ekki að gefa þau út á bátanna.

Setja þarf strangar reglur um menntun og siglingatíma.

Níels A. Ársælsson., 2.7.2010 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband