26.11.2013 | 23:26
Aðgát skal höfð í nærveru sálar...
Unanfarin ár hefur átt sér stað bylting í viðmóti samfélagsmiðla á þann veg að lítið mál ef fyrir okkur sem það kjósum að tileinka okkur þessa miðla og nóta þá. Margt jákvætt fylgir þessu, en því miður töluvert neikvætt líka. Borið hefur á því að börn hafi nýtt sér þetta nýja form samskipta til eineltis, og við sem eldri erum höfum fallið í þá gryfju einnig svo vel er eftir takandi.
Það virðist nefnilega vera orðið að þjóðaríþrótt að tala illa um náungan, og mesta athyglina fær sá er verst velur orðin.. Mér finnst á köflum það vera með ólíkindum hvernig þessir annars mögnuðu miðlar eru orðnir að gróðratstíu öfga þegar kemur að orðræðu um málefni og menn. Við sem notum þessa miðla okkur og vonandi öðurm til einhvers gagns og ánægju fengum örlitla vakningu um ein áramót, þegar áramótaskaup sjónvarpsins var að hluta tileinkað því nýnæmi á opinberum vettvangi að mega athugasemdalaust uppnefna og kalla náungan öllum þeim verstu nöfnum sem okkur detta í hug hverju sinni af hvaða tilefni sem er.
Og þó svo að tilefni sé til staðar til að finna að hegðun, orðum eða gjörðum einstaklinga af hinum ýmsu stigum þjóðfélagsins, þá virðast aðfinnslur netverja miða að því einu að særa, hneyksla eða ganga sem mest fram af þeim sem letrið berja augum, lítið fer fyrir málefnalegri umræðu eða gagnrýni, gagnrýni sem miðar að því að rýna til gagns og hugsanlega leggja nýja sýn inn í umræðuna og jafnvel bæta það sem rætt er um hverju sinni.
Einn angi af þessu er hversu mikill dilkadráttur er tengdur þessu og yfirleitt er lægsti mögulegi samnefnarinn notaður yfir hóp fólks og allir settir undir sama hatt. Við sjáum þetta í ýmiskonar umræðu t.d. um ýmsa þjóðfélagshópa og starfsstéttir, jafnvel mjög fjölmenna hópa og það gefur augaleið að ekki eru allir eins þó svo að þeir stundi sama atvinnuveg eða deili skoðunum á málefnum líðandi stundar. Hóparnir eru dæmdir einsleitir þó svo að sannleikurinn sé langt frá því að vera á þá lund sem gefið er í skyn.
Misjafn sauður er í mörgu fé er orðatiltæki sem hér á ágætlega við, það er nefnilega svo að fólk er jafn misjafnt í orðum og gjörðum og fjöldi þeirra gefur tilefni til hverju sinni og því ætti ekki að velja eins og áður sagði, lægsta mögulega samnefnarann til viðmiðunnar heldur að horfa til þess sem hver einstaklingur hefur til málana að leggja.
Því verð ég að enda þennan stutta pistil á því að hrósa þeim sem ekki hafa tamið sér þann leiða sið að uppnefna, stuða og hneyksla á þessum vettvangi, heldur eru að reyna að byggja upp gagnlega og vitræna umræðu okkur öllum til hagsbóta. Vandin er hinsvegar sá að einhverra hluta vegna fær það ekki sömu athygli fjöldans að vera dannaður eða málefnalegur í málflutningi en það má samt ekki að stöðva þá sem vilja í því að velja þann veg.
Það er hverjum manni hollt að fá gagnrýni á sínar gjörðir og verk, en það er líka hverjum manni hollt að byggja sína gagnrýni á málefnalegum grunni og við vitum það vel aðgagnýni sem sett er fram á málefnalegan hátt er miklu vænlegri til þess að hafa áhrif á skoðanir annara og niðurstöðu mála en sú aðverðar fræði að uppnefna, dæma og formæla í gríð og erg án þess að málefnið fá í raun nokkurt innlegg sem til gagns má teljast.
Góðar stundir
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.