Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Rugl og bull.........

Ég var að hlusta á útvarpið áðan og enn og aftur var Vilhjálmur Egilsson að tala um það hvað hækkun lána hjá íbúðalánasjóði myndi valda miklum erfiðleikum í efnahagslífinu..

Ég er s.s. ekki neinn sérfræðingur um prósentur lána og efnhagslífið, en þessa ræður þess ágæta fyrrum þingmanns, tel ég vera helv... bull

Raunhækkun þessara lána er ekki nema 5,8% því að hámarkslán íbúðalánasjóðs eru nú 18 miljónir en voru 17.  Það sér hver maður sem vill sjá að þetta eitt og sér hefur sáralítil áhrif á íbúðamarkaðinn og efnahagslífið, að hækka hlut íbúðalánasjóðs í lántökum um eina miljón í meðal húsnæði.

Þessi breyting er til þess fallin að létta ungu fólki að fjárfesta í sínu fyrsta husnæði og koma undir sig fótunum, en þurfir þú húsnæði fyrir t.d. 4 manna fjölskyldu, þá hefur þetta lítil áhrif því að stærra húsnæði er mun dýrara en svo að þetta hafi áhrif.

Í mínu tilviki hafði þetta engin áhrif, nema kanski að ég borga örlítið minni vexti.

Ég kaupi hús á 23 miljónir.  Hámarkslán var þá 17 miljónir eða 80% veðsetningarhlutfall.  sem þýddi það að ég fékk lánaðar 17 miljónir hjá íbúðalánasjóði og afgangin sem vantaði uppá 80% eða 1,4 miljónir hjá mínum viðskiptabanka, samtals 18,4miljónir.

En eftir breytingu fæ ég 18 miljónir hjá íbúðalánasjóði og 400þ hjá mínum viðskiptabanka eða samtals 18,4 alveg eins og í fyrra tilvikinu, en veðhlutfallið hjá mínum viðskiptabanka er 80% og því breytir þetta engu fyrir mig.....

Og hananú.......


Þetta er allt að koma.........

Kerrufarmarnir eru ekki lengur teljandi á fingrum annarar handar of handtökin eru mörg....  Því sem hent hefur verið er ekki í kílóavís heldur í hundruðum kílóa....

Flutninganir eru því sem næst yfirstaðnir og komið þokkalegt skikk komið  á hið nýja heimili, einungis er eftir að tæma geymslurnar 3 og það verða víst einhver handtökin sem fylgja því, og eflaust verður hægt að henda einhverjum slatta þar.

Er það ekki alveg makalaust hvað hægt er að safna miklu magni af drasli á stuttum tíma, gamla húsið var keypt 2003 og það virðist sem öll skúmaskot séu full af drasli sem ég hef engin not fyrir né engan vilja til að eiga.  Þannig að það virðist vera nauðsynlegt til að maður kafni ekki í helv.. drasli að flytja á reglulegum basis.

En þetta er allt að koma.....


Púff!!!!!!

Stend í flutningum þessa helgina, og það er nú ekki með því skemmtilegasta sem maður gerir og í hvert einasta skipti sem að staðið er í þessu er því heitið að gera þetta aldrei aldrei aftur.

En ljósi punkturinn er sá að nú erum við komin í mun skemmtilegra húsnæði, á einni hæð og talsvert nýrra, en nýja húsið er byggt 1993 en það gamla er byggt 1920.

Það verður ákaflega mikill léttir þegar þetta er búið og það verður notalegt að slaka á í nýjum húskynnum þegar búið verður að ganga frá öllu.

svo er nú það....


Effellturninn....

Var verkfræðilegt undur á sínum tíma og er eiginlega enn. Gríðarleg vinna fór í byggingu þessa fyrirbæris og hönnunina sem átti varla nokkurn sinn líka á þessum tíma.

En viti menn, þessari smíð sem nú er eitt af þekktari kennileitum í heiminum, og miljónir manna heimsækja á hverju ári, var á sínum tíma mótmælt af listaspírum Frakklands og orð eins viðundur, skrímsli og sóun voru í miklu uppáhaldi hjá þeim sem mótmæltu.

Er það regla að fólk sem hneigist til lista sé á móti verkfræðilegum stórvirkjum, óháð stað eða stund????

Maður spyr sig............


Rafmagnið....

verður bara sjálfsagt til í veggjum íbúða í Fraklandi....... GetLost

Ekki að kjarnorkuver sé eitthvað sem eigi að vera sjálfsagt, en frekar vildi ég hafa eitt nýtt í bakgarðinum hjá mér heldur en gamalt og úrelt............


mbl.is Tugþúsundir mótmæla byggingu kjarnakljúfs í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neikvæð ímynd

Feministi!!!  Þetta er eins og skammaryrði í eyrum margra nú til dags.  Og afhverju er svona komið fyrir feministum??

Ég hef verið að skoða hér á blogginu hinar og þessar síður og m.a. síður kvenna og karla sem gefa sig út fyrir það að vera feministar, og ég held að vandinn liggi fyrst og fremst í því hvað málflutningur þessa áæta fólks einkennist oft af öfgum og fordómum.

Ef kona og karl vinna sömu vinnu og fá EKKI sömu laun fyrir það þá er það EKKI alltaf bundið kyni, það getur verið svo margt sem spilar þar inní fleira, en við vitum líka að kyn viðkomandi einstaklings getur haft þar áhrif en það er ekki algilt.

Nú virðist vera vilji til þess að aflétta launavernd, til þess að ná fram þeim markmiðum að jafna laun kynjana, en ég er ekki viss um að það skili tilætluðum árangri. 

Þetta er aðeins einn hlutur af mörgum sem veldur því að orðið "feministi" hefur á sér frekar neikvæðan stimpil, annar hlutur sem virðist vera frekar algengur hjá feministum er það að þeir hlutgera karlmenn og setja þá alla undir sama hatt.  Og það er einmitt eitt af því sem feministar hafa barist fyrir að samfélagið gerði ekki við konur það er að segja, að hlutgera þær og setja allar undir sama hatt.

Kynjamisrétti myndi snarminka ef að okkur bæri gæfa til þess að leyfa að einstaklingunum að njóta sín sem einstaklingum ekki sem karli eða konu, að setja einstakling í embætti eða starf einungis vegna kyns er algerlega óásættanlegt alveg sama á hvorn vegin sem það er gert, og því ætti að hætta því hið snarasta. 

Að stunda jákvæða mismunun grefur undan trú á hæfni og getu einstaklingsins og hann jafnvel efast sjálfur um sitt ágæti þegar sú aðferðarfræði er viðhöfð.

Sí jú aránd...... 


Yfirvinna ????????

Það þarf kanski bara að fara borga þeim yfirvinnu, af því að þinghald gæti lengst??  Mér finnst nú bara eðlilegt að þau mál sem þarf að klára séu bara kláruð, og það ætti ekki að skipta neinu máli þó að þing lengdist um eina viku eða tvær.

Þetta er vinna sem þarf að framkvæma og það á ekki að gera þetta í einhverju hendingskasti á síðustu metrunum...

Yfirvinna, það er málið..............


mbl.is Óvissa um þinglok á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já há

Það eru rétt liðnir tæpir 6 mánuðir síðan ég hætti hjá Vífilfelli og þá þurfa þeir að fá bara lið af öllum norðurlöndunum í lið með sér, ætli að þarna sé eittthvað orsakasamhengi????

Nei líklega ekki, en það er gaman að halda því fram, og góð saga á aldrei að gjalda sannleikans.....

Skál............


mbl.is Forstjóri Coca-Cola í Skandinavíu aðstoðar við kynningu hjá Vífilfelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á þetta að þýða....

Ég er í fasteignahugleiðingum, sem er s.s. ekki í frásögur færandi, og var í kjölfarið að skoða mögulega á lánum innni á vefum bankana.

Allt var þar mjög svipað uppi á teningnum hvað varðar kaup og kjör og einnig hvað varðar það sem engin forðast frekar en dauðan, skattinn.....

Hvað á það að þýða á 21 öldinni að skattleggja lántökur fólks sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið, að skattleggja lántökur.....

1,5% af þeim peningum sem þú færð lánað renna í skatt til ríkissjóðs, þetta eru peningar sem ég gæti vel hugsað mér að nota í eitthvað annað heldur en að henda í ríkiskassann, og til að bæta gráu ofaná svart þá taka bankarnir og Íbúðalánasjóður 1% í svokallað lántökugjald sem er náttúrulega bara auka vextir af þeim peningum sem þeir eru að lána þér.

Þannig að ef þú tekur 20 miljónir að láni, þá fær bankinn strax í sinn vasa 200.000.- kr og ríkissjóður 300.000.- í skatt.  Samtals um hálf miljón sem strax er horfin af þeim peningum sem þú hefði ella getað notað til að koma þér þaki yfir höfuðið.

Af 500.000.- reiknast síðan 5% vextir + verðtrygging þannig að á ársgrundvelli gæti kostnaður af þessu "ráni" verið um 80.000.- krónur eða um 6.666.- krónur á mánuði.

Meiri helvítis vitleysan.................


Útrunnið....Bútrunnið....

Ég á ekki orð.... (og það gerist ekki oft)

Ruglið er orðið þvílíkt í þessu stimplaveseni á matvælum að það nær ekki nokkri átt, ég er þess fullviss að sumt af þeim tonnum sem var verið að henda á haugana frá fjölskylduhjálpinni, var í fínu lagi.

Þurrvara sem geymd er við góð skilyrði er í fínu lag í heilt ár eftir síðasta söludag eða "best fyrir".  Það er ekki sami hlutur "síðasti söludagur" sem yfiirleitt á ferskvöru og svo "best fyrir" sem er algeng merking á þurrvöru og niðursuðuvöru.  Lengi vel var talað um það að niðursuðuvörur væru taldar góðar í 5 ár eftir "best fyrir" stimpilin, og dæmi þess að í lagi hafi verið með slíka vöru allt að 15 árum eftir stimpil.

Ég er nú ekki að mæla því bót að menn séu að slafra þetta í tíma og ótíma eingöngu, en það er svo sannarlega í lagi að þetta sé haft með, sérstaklega ef ekki er verið að reyna að narra þetta ofaní fólk.

Meira segja sjampó og hárnæring er með stipli.....  Hvað er málið????

Nei þetta er enn eitt dæmið um hina gengdarlausu sóun sem er í gangi hjá okkur.....

Ég ét útrunnið Cherios............. Og hef gaman af............


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband