Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Að hengja bakara fyrir smið

Í grein í 24 stundum fimmtudaginn síðastliðinn, skrifar Birgir Ármannson þingmaður Sjálfstæðismanna, grein undir yfirskriftinni "Á ríkið að lána til íbúðakaupa?"  Í þessari grein veltir þingmaðurinn því fyrir sér hvort að íbúðalánasjóður í þeirri mynd sem hann er í dag eigi rétt á sér.  Eftir einu hjó ég þá sérstaklega í þessari grein hans, það er að hann vill meina að það sé íbúðasjóði að kenna að fasteignaverð hafi hækkað á íslandi ásamt aukinni þenslu og verðbólgu. 

"Fjölmargir aðilar sem um íslensk efnahagsmál fjalla hafa bent á þetta, meðal annars í því samhengi að þaða hafi verið undarleg og óheppileg staða að á sama tíma og Seðlabankinn hafi reynt að sporna við verðbólgu með aðgerðum á sviði peningamála hafi lánasjóður í eigu ríkissins róið í öfuga átt

Þarna tekur hann undir með fyrrverandi þingmanni sem nú er framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífsins (ef ég man rétt) en sá mæti maður hefur einmitt haldið þessu fram líka.

Nú þegar málsmetandi menn af þessu tagi tala um slíka hluti hlýtur það að vera rétt eða hvað??  Ekki aldeilis, allavega ekki í mínum huga.  Þið sem þetta lesið leiðréttið mig endilega ef þið eru mér ekki sammála.

Það sem íbúðalánasjóður gerði þegar bankarnir tóku höndum saman og reyndu að bola honum útaf markaðnum var tvennt: hámarkshlutfall fór í 90% af kaupverði og hámarksupphæð fór í 18 miljónir.  Hvort tveggja var reyndar pólitísk ákvörðun sem tekin var af ráðherra til að uppfylla kosningaloforð.

En hvað gerðu bankarnir??  Þeir fóru með sín lán í 100% og hámarkið var nánast ekkert!!!  Það sér hver maður sem vill að það voru ekki þær aðgerðir sem íbúðalánasjóður fór í sem hleyptu fasteignaverði verðbólgu og þennslu upp, það voru aðgerðir hina frjálsu bankastofnana.

Og einnig er rétt að hafa í huga að á meðan þú gast fengið 100% fjármögnun á íbúð í 101 sem kostaði um 35 milljónir, þá fékkstu ekki krónu frá sama banka ef þú vildir kaupa þér hús á Hvammstanga eða Vík í Mýrdal, en þar lánaði íbúðalánasjóður þér í sama hlutfalli og með sömu hámarksupphæð og allstaðar annarsstaðar. 

Mottó bankana hefur einmitt verið "bara ef það hentar mér" þegar útlán utan torfunar hafa verið uppi á borðinu.

Það má rétt vera að það eigi að endurskoða tilgang og hlutverk íbúðalánasjóðs, og opinberar stofnanir eiga að sjálfsögðu að vera í stöðugri framþróunn, en það má samt ekki fórna honum á altari einkavæðingar heldur þarf að endurskilgreina hlutverk hans, ef það þarf að breyta einhverju á annað borð.

Ég held að í þessari grein sinni sé Birgir að hengja bakara fyrir smið, og lýðurinn sem fagnar þegar bakarinn hangir í snörunni eru bankarnir, sem þyrstir í að geta einokað í samráði íslenskan íbúðalánamarkað....


Enn og aftur....

Kemur það í ljós hversu handónýtar þessar "mótvægisaðgerðir" eru, ég er ekki viss um að eitt nýtt starf hafi skapast niðri á fjörðum vegna þeirra.

Það má reyndar líta á stóru myndina í þessu, og segja að Egilsstaðabúar missi hvað mest þegar svona kvótaskerðing er annars vegar, því að samdráttur í tekjum við sjávarsíðuna skilar sér væntanlega í samdrætti á kaupum á þjónustu Fjarðamanna á Héraði og þessvegna mætti segja að þetta sé réttlætanlegt, en mér finnst nú persónulega að mótvægisaðgerðir sem þessar eigi að beinast að þeim byggðum sem eru utan áhrifasvæðis virkjunar og stóriðju hér fyrir austan, fyrst og fremst, og þar eru Egilsstaðir ekki.

Vopnafjörður, Bakkafjörður, Þórshöfn, Djúpivogur og Breiðdalsvík eru staðir hér fyrir austan sem þurfa mest á þessu að halda, og best væri ef hægt væri að skapa varanleg framtíðarstörf á þessum stöðum, en ekki eitthvað tímabundið.


mbl.is Tvö ný störf í boði á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur af Axarvegi...

Ég hef haft miklar og sterkar skoðanir um Axarveg í gegnum tíðina, og oft hlotið bágt fyrir, sérstaklega hjá frændum mínum og vinum, á mínum uppvaxtarstað Djúpavogi.  Einna harðast í gangrýni á mig, hefur Andrés Skúlason Oddviti Djúpavogshrepps gengið, og stundum hefur mér fundist nóg um, og það jafnvel þó að ég sé frekar lítið hörundssár þegar gagnrýni á mig er annarsvegar.

Ég geri mér vel grein fyrir því að stytting milli Djúpavogs og Egilsstaða verður hvergi meiri en um Öxi, og það þarf ekki að prétika yfir mér um ágæti vegastyttinga þar sem að ég var atvinnubílstjóri í nær 5 ár þá veit ég hversu mikils virði vegstyttingar eru.

En það breytir ekki þeirri staðreynd að Axarvegur er í um 530 metra hæð yfir sjó, og snarbrattur verður hann alltaf að austanverðu, sama hvernig vegurinn verður lagður.  (8% hljóma kanski ekki sem mikill halli en stór hluti af Oddskaðsvegi er 8% og ég þekki fáa sem finnst hann vera jafnsléttur)

En upphafið á þessum pistli mínum átti ekki að vera þetta, heldur ætlaði ég að tala um þann leiða ávana einstakra aðila þegar hitamál sem þetta eru rædd að sveigja frá málefninu og málefnalegri umræðu um það og yfir á persónulegt áreiti (var að hugsa um að nota orðið skítkast en ákvað að vera dannaður) í stað þess að halda sig við málefnin.

Andrés vinur minn er einmitt einn af þeim sem lenda í þessum skurði persónulegs hroða sem ég tel að menn eigi að forðast og halda sig við málefnin.

Tökum dæmi:

"Það verð ég nú reyndar að segja að ég tel mig í mun minni hættu að keyra yfir Öxi í flughálku í dag heldur en að fara langferð með fjörðum og eiga það á hættu að mæta þér á þínum meðalhraða."

Þetta er gott dæmi um málflutning sem er ekki réttlætanlegur á nokkurn hátt, að draga mína persónu og mitt aksturslag inn í umræðu um fjallveg austur á landi.  Hvað á Andrés eiginlega við??   Jú ég hef orð á mér fyrir að keyra frekar í hraðari kantinum en hvað kemur það Axarvegi eiginlega við??   Gæti hann ekki mætt mér á Öxi líka??    Ég keyri þann veg nú stundum, þrátt fyrir að ég eigi að vera sérlegur andstæðingur Axarvegar þá telur teljarinn þar, stundum af mínum völdum.

En tökum annað dæmi:

"Vinnubrögð þín og Guðmundar Þorgrímssonar félaga þíns voru líka fullkomlega opinberuð í þessum efnum á aðalfundi SSA á Hornafirði fyrir tveimur árum, svipuð og jafn ómerkileg vinnubrögð voru uppi þegar þú og Mr. Elísson á Eskifirði stóðuð upp á Aðalfundinum á Reyðarfirði með fáránlegustu tillögu sem flutt hefur verið á Aðalfundi SSA sem gekk bara út að að skaða varanlega vegabóta um Öxi og Skriðdal."

Þarna er Andrés að tala um eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað er, þ.e. í fyrra skiptið, varðandi þing SSA.  Þar var ég í samgönguhóp, og ég tel að það hafi verið að stórum hluta mér að þakka að fundarmenn hættu skotgrafarhernaði þeim sem búinn er að viðhafast á þingum SSA undanfarin ár, og fóru í stað þess að vinna eins og menn, en Andrés eignar það allt Birni Hafþóri sínum sveitarstjóra. Ég hef verið talsmaður þess í mörg ár að á fundum SSA færu menn þá leið þegar smgöngur bæri á góma að vinna á svipaðan hátt og löggjafinn gerir, þ.e. að gera samgönguáætlun sem nær yfir fjórðungin allan, og það sem lagt væri til grundvallar væru t.d. öryggi vegfarenda, heilsárssamgöngur og stytting vegalengda. 

Á þingi SSA á Hornafirði var loksins ályktað um vegabætur í fjórðungnum í eitthverju vitrænu formi, en þar töldum við upp allar þær vegabætur sem við sáum fyrir okkur í fjórðungnum, og byrjað var syðst og endað nyrst.  Þetta virðist hafa virkað það vel því að þetta kom nánast óbreytt frá aðalfundi SSA sem haldinn var á Vopnafirði í haust. 

Varðandi tillögu mína og Andrésar Elíssonar, á aðalfundi SSA á Reyðarfirði 2006 þá var hún einföld: "Setjum þá peninga sem ætlaðir eru í endurbætur á Breiðdalsheiði í Axarveg og færum þjóðveg eitt niður um firði. "  Ef þetta var ekki málamiðlun þá veit ég ekki hvað, en þetta mátti ekki ræða, og einhver kom  með frávísunartillögu á þetta í stað þess að leyfa umræður á vitrænum grunni. 

Enn eitt dæmi: 

Umferðin um Öxi hefur því bara vaxið síðustu ár og þá finnst þér Eiður minn einmitt orðið tímabært og eðlilegt að láta bara loka veginum, meira að segja þótt megin umferðin milli mið- austurlands og suðurlands liggi nú um Öxi þegar vegurinn er vel fær öllum bílum.   

  

Ég hef aldrei, og ég endurtek aldrei, sagt að Axarvegi skyldi lokað, heldur hef ég haft efasemdir um öryggi þessa fjallvegs og staðsetningu hans í forgangröðinni í vegabótum hér á austurlandi.

En það má einnig benda á það að þegar talað er um þennan ágæta veg þá fær fólk á tilfinninguna að það sé álíka mikil umferð um Öxi og Reykjanesbraut, en sannleikurinn er allt annar því að ef eitthvað er að marka heimasíðu Vegagerðarinnar er umferð um Öxi 91 bíll á dag að meðaltali yfir árið. 

En til samanburðar keyra 18 bílar um Þórudalsheiði að meðaltali yfir árið og þar er lokað a.m,k. 5 mánuðu á ári, og við Herðubreiðarlindir eru það 36 bílar yfir árið, og þar er vegurinn lokaður frá nóvember fram í júní, og um Suðurfjarðaveg sem á að vera svo til ónotaður þegar Öxi er opin fara 245 bílar að jafnai yfir árið, svo að það er nú ekki sami svakalegi umferðarþungin þarna yfir og menn vilja meina. En ef við berum saman sumarumferð, sem er sanngjarnara þá fara um Öxi 189 bílar á dag en 422 um firði þannig að það er nú ljóst hvar meginnþungi umferðarinnar liggur.

En að lokum, þegar tekist er á um ágreiningsmál svipuð þessum, í guðanna bænum reynum að halda okkur við staðreyndir en ekki persónulegt skítkast, það er betra fyrir alla, og það er öllum hollt að ræða hlutina eins og þeir eru í stað þess að fara með staðlausar staðreyndir.

Góðar stundir


Óveður á Fagradal...

Ímyndið ykkur Stórasand (þar sem sumir vilja setja hálendisveg milli Reykjavíkur og Akureyrar) og 2-3 sinnum verra veður en sést á þessum myndum og ekki nóg með það heldur eru 70 kílómetrar í næstu björgunarsveit og aðstðoð.

Ekki nóg með það heldur er þessi umræddi staður  umþb 400 metrum hærra yfir sjó en Fagridalur og því má kanski segja 4-5 sinnum verra veður sé nærri lagi,

Myndirnar eru hér: http://picasaweb.google.com/bjsv.arsol/Fagridalur31012008

 


Þetta er nú....

Meira ruglið, því að flestir þeir sem lægstar haf atekjurnar vinna í sínu sumarfríi til að endar nái saman, nú hafa þeir þá 30 daga sí stað 25..   Það má kanski líta á það sem kjarabót, að geta unnið meira í lengra fríi.
mbl.is Orlof lengt í 30 daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvur andsk...

Er eiginlega í gangi hér til hægri á síðunni????   Nova tröllríður öllu þannig að ekki er hægt að skoða það sem á síðunni á að vara, Burt með þetta, burt og það ekki seinna en strax!!!!!

Netstjórar þess bloggs ættu að skammsast sín og laga þetta hið snarasta.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband