Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Það er ekki....

Mikið um það að menn bloggi við þessa frétt.. Ég velti því fyrir mér hversvegna þar er.. ??

Kanski vegna þess að þetta er JÁKVÆTT um áliðnaðinn... Hér er launin þó þokkaleg og starfsöryggið mikið..

Það er jú einhvers virði er það ekki??


mbl.is Launþegar fá allt að 200 þúsund í jólabónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað erum við að tala um hér...??

Grænir skattar eru tískuorð, sem mikið hefur verið fabúlerað um undanfarin ár. Að skattleggja eftir mengun er í raun hugmyndafræðin, einfalt ekki satt..??

Nei þetta er ekki einfalt, "grænir" skattar hafa verið við lýði á Íslandi síðan það fór að flytja inn jarðefnaeldsneyti, það hefur sennilega alltaf verið vörugjald og skattur á kolum og olíu, og það er í sjálfu sér "grænn" skattur.

Ég skil hugmyndafræðina á bakvið "græna" skatta, en nái áform SJS fram að ganga um að skatturinn sé það hár að fyrirtæki standi ekki undir honum þá erum við á rangri braut.

 Ég myndi sennilega hætta að vinna og þiggja atvinnuleysisbætur ef að ríkið tæki allan minn hagnað í sinn vasa, svo mikið er víst og það myndu flestir sem ég þekki gera. Það er nefnilega hægt að skattleggja úr hófi fram og miðað við það sem við höfum séð á síðum blaðana undanfarið þá er veruleg hætta á því að ýmislegt leggist af verði þetta að veruleika.

Hvað er næst??

Hversvegna að stoppa hér við "fast jarðefnaeldsneyti... Eigum við ekki að leggja"kolefnisskatt" á þotueldsneyti..? Það verður að gera það ef að menn eiga að vera samkvæmir sjálfum sér, þotufloti landsmanna mengar mikið, og nokkrar krónur á hvern lítra þotueldsneytis hljóta að vera sanngirnismál, flugfélögin geta þá bara hækkað miðaverð til að mæta því..

Og meðan ég man.. Hefur einhvern tíman verði tekið saman hvað einn ferðamaður sem hingað kemur með hefðbundnum aðferðum mengar mikið... ??? Það er ekki nema að hann syndi hingað og labbi svo um landið sem hann er fullkomlega "grænn" ...

Nokkrar krónur í viðbót á bensín og olíulítrann eru þá væntanlega í pípunum.. enda ekkert tiltöku mál að borga aukna skatta af tekjum sínum og svona eins og 300 kall fyrir bensínlítrann. Og auðvitað hækkar það flutningsgjöld á láði og legi, sem er sennilega ekkert tiltökumál heldur...

Og við þurfum auðvitað að leggja aukin gjöld á Metanið, það kemur jú mengun frá þeim sem það nýta þó að hún sé kannski í minna magni...

Ég held að við hljótum öll að sjá að þessi jafna er ekki að ganga upp..

Ég sé ekki fyrir mér að menn séu tilbúnir að borga hvað sem er fyrir það að koma hér á Frónið og dvelja hér með ærnum tilkostnaði í mat drykk og eldsneyti þó að fallegt sé.... Nei ég held að við séum á rangri leið í þessum málum, það er eðlilegt að skattleggja fólk og fyrirtæki en það þarf nú að gæta meðalhófs í því sem og öðru...

Góðar stundir


mbl.is Kolefnisskattur veldur uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hversvegna...

Gera þá Bresk stjórnvöld ekkert í málinu.. ??

Níðingsverk Ísraelsmanna eiga að vera búin að kalla á efnahagsþvinganir hið minnsta, hernaðaríhlutun hið mesta..

Þarna er verið að fremja þjóðarmorð fyrir augum alþjóðasamfélagsins og það eina sem kemur frá þeim sem horfa á eru ályktanir og eithvað ble...

Þetta er eins og reyna að slökkva skógareld með því að tala um rignignu í ræðustól.... Virkar ekki...

Ansvítans árans...

 


mbl.is Reiðarslag fyrir frið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrapp...

Á fund til Reykjavíkur á mánudaginn var (31.10.11) og það er s.s. sem ekki í frásögurfærandi, nema hvað við (Stjórn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar) fórum í heimsókn í hið nýja skip Landhelgisgæslunar, Þór.

Þetta nýja skip sem allt er hið glæsilegasta, er vel búið tækjum og tólum og er fært í flestan sjó, en ef sagt er svona frá því helsta þá má týna ýmislegt til.

  • Gangharði 19.5 hnútar
  • Togkraftur 120 tonn
  • Stærð: breidd 16 metrar, lengd, 93,8 metrar, hæð 32 metrar, brúttótonn 3.920.
  • Dráttarvindur 2 stk 250tt og 100t fjarstýranlegar úr brú
  • 2 kranar 105 og 8 tonnmetrar.
  • Þilfar 300m2, lestarrými 400m2, tankrými fyrir eldsneyti skips um 1.400m3
  • MOB bátar 2 stk ganghraði 35 hnútar
  • Aðalvélar 2 rúm 12.000.- hestöfl samanlagt (4.500kw hvor)
  • Ljósavélar 4 550 kw hver
  • Ásrafalar 2 1.600 kw hvor.
  • 3 hliðarskrúfur 2 að framan 1 að aftan
  • Azimuth skrúfa (viðurfellanleg snýst 360°)
  • Samhæft stjórnkerfi
  • Andveltisbúnaður
  • Olíuhreinsibúnaður.

Þessi listi er ekki tæmandi þvert á móti, þetta skip er allt hið glæsilegasta handbragð og vinnubrögð hvar sem litið er eru til fyrirmyndar og allt mjög fínt og vel unnið.  18 manns eru í áhöfn, en hægt er að hýsa 48 manns í rúmum í það heila. 

Það mátti sjá á forsvarmönnum Landhelgissgæslunar að þarna var langþráður draumur orðin að veruleik og þeir hafa fulla ástæðu til að vera ánægðir með gripin.

Smellti af nokkrum myndum af herlegheitunum og fylgja þær hér með.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband