Bloggfærslur mánaðarins, október 2010

Drengurinn...

Er náttúrulega snillingur, alveg sama hvaða skoðun aðra menn hafa á honum...

Betra er illt umtal en ekkert er búið að vera hans mottó í nokkur ár, og það er augljóslega að virka. Mér finnst hinsvegar fyndið að hann skuli veðja á miðil sem er að kólna á líkbörunum, það les engin símaskránna í dag, hún er í besta falli notuð til að þurka blóm eða sem fótskemill handa fólki sem er í minni kantinum og það er kanski ástæðan fyrir þessu hjá Agli...Hver veit?

En hvað um það, ég lagði það á mig í fyrra að ná í símaskránna til Eimskipa (en þeir sáu um dreifingu) vegna þess að Hugleikur var meðhöfundur.  Ég mun ekki fara til Eimskipa í ár, nema þá kanski til að fá kaffi hjá Sigga og félögum í afgreiðslunni hér á Reyðarfirði..

Góðar stundir...


mbl.is Safna undirskriftum gegn Agli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég veit ekki....

En samanburðartölfræði er alltaf snúinn...  kíkum til dæmis á þetta:

Samkvæmt hagstofunni voru meðallaun karlmanna árið 2009 um 360.000 á mánuði með 43,8 vinnustundir á viku eða u.þ.b. 2055 kr. á tímann.

Konur voru með 293.000 í meðallaun og 34,9 vinnustundir á viku eða 2098 kr. á tímann. 

Það er rúmlega 50% meira atvinnuleysi meðal karlmanna en kvenna og 2/3 ...sem útskrifast úr háskóla eru konur.

Karlar lenda í 76% allra vinnuslysa.

Til hamingju með daginn konur!  

En eins og ég sagði í upphafi, þá er svona samanburðartölfræði ávalt snúinn.... 


mbl.is Konur ganga út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er alvarlega vannheill....

Enda kenndi mér prestur þegar ég var í grunnskóla..

Hann kenndi mér m.a. Ensku, íslensku, náttúrufræði og að sjálfsögðu voru trúmál rædd eitthvað, en ég minnist þess reyndar ekki að kristnifræði hafi verið kennd í þeim bekkjum sem ég sat í þessi 3 ár sem presturinn kenndi mér.

En auðvitað er ég skemmdur á sál og líkama eftir þetta allt, ofstækisfullur kristin kall að nálgast miðjan aldur.

Nei vinir mínir ef ég er alvarlega vanheill þá er það ekki Sigurði presti að kenna, og ef ég er ofstækisfullur þá er það heldur ekki honum að kenna, það var varla hægt að hugsa sér betri kennara og þó að hann hafi stundum minnst á það almætti sem við flest höfum játað trú á, þá var nú ekki verið að troða einu né neinu inn á okkur.

En  núna er verið að einbeita sér að röngum hlutum í skólamálum Reykjavíkurborgar, nær væri að biðja um meiri kennslu í trúarbragðafræði,og þá í öllum trúarbrögðum til að tryggja skilning og umburðarlyndi milli hópa.

Og þegar allt kemur til alls snýst þetta ekki svo mikið um námsefnið, þetta snýst um fólkið sem kennir, því fæst trúarbrögð eru ill og flest boða þau gott, en það erum við mannfólkið sem stundum afbökum trúarbrögðin af annarlegum hvötum við erum hinir seku í því að ala á ófrið og óvild milli trúfélaga og samfélaga ekki trúin sem slík, og það er auðvelt að kynda undir þessu  séu samskipti, upplýst umræða og fræðsla ekki í boði.

Nei hættum að vera með þetta bull um úthýsingu og bönn, bætum frekar við og bjóðum fleiri trúfélögum að koma og kynna trú sína, og takið eftir kynna, því að hingað til hefur kristnifræðsla eða trúarbragðafræði í skólum ekki verið trúboð, það hefur fyrst og fremst verið kynning á inntaki og sögu trúarinnar.

Og það á sjálfsögðu að kynna það fyrir öllum sem í skólanum sitja, sama hverrar trúar þeir eru. 

 


Hvenær verður....

Þessi listi gerður opinber??

Það tekur mann sennilega nokkuð langan tíma að renna í gegnum þetta, og mynda sér skoðun á þessu ágæta fólki, en það er bráðnausðynlegt að gera það áður en kosið er.

Hinsvegar eru kosningareglurnar alveg gjörsamlega óskiljanlegar, og alltof flóknar og bjóða heim endalausum vandræðum, og sú aðferðarfræði að færa atkvæði á milli einstaklinga hugnast mér ekki.

En við sjáum til kanski verður þetta allt eins og blómstrið eina.

 


mbl.is 523 í framboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu mikið eru.....

Þessi 75% ???

Það er fullyrt að það kosti 220 milljarða ef ráðist yrði í almenna skuldaleiðréttingu.  Talan 220 milljarðar er hins vegar frekar hæpin.

Nokkrar villur eru  í útreikningunum er gert ráð fyrir að ef ekki verður ráðist í skuldaleiðréttingu muni ekkert verða afskrifað neins staðar og samt muni allt innheimtast upp í topp, jafnvel lán sem þegar er ljóst að eru að miklu leyti töpuð.

Ekki er gert ráð fyrir neinum efnahagslegum ávinningi fyrir ríkið eða almenning.  Við vitum að það losnar um fé þegar þessi aðgerð yrði framkvæmd og það myndi efla hagkerfið sem nú er stopp.  

Ekki er gert ráð fyrir því að lánasöfn batni eða að bankar og lífeyrissjóðir hafi hag af betra lánasafni, betri efnahagsstöðu og minna atvinnuleysi.  

Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn lendi allur á lánastofnunum strax.  Það gleymist að um er að ræða húsnæðislán til allt að 40 ára.  

Ljóst er að tilraunir til að leysa vandann með sértækum aðgerðum voru algjörlega óraunhæfar eins og bent var á strax í upphafi. Það að aðstoða aðeins þá sem komnir eru í þrot  eyðileggur alla hvata til að vinna sig úr vandræðum.

En verum varfærin og segjum að leiðrétting hér mundi nú kosta lánastofnanir  100 milljarða nettó og einungis hluti þess félli á þær strax, hvað er það samanborið við rýrari lánasöfn og uppsöfnun á eignum sem þær sitja svo uppi með??

Einnig má færa fyrir því rök að lífeyrissjóðirnir og lánastofnanir séu ekki að tapa þessu öllu heldu sé þetta endurgreiðsla á gróða sem varð til vegna sama forsendubrests....

Væri ekki vert að skoða þetta ofaní kjölinn í stað þess að slá fram misréttum fullyrðingum um tap og áföll sem ekki standast nánari skoðun...?? 


mbl.is Lífeyrissjóðir hefðu borið 75% kostnaðar við skuldalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðist ætla....

Að fara í sama farveg og aðrar kosningar hér í landi... Þú átt ekki séns nema að þú sért landsþekktur á einhvern hátt, grínari, blaðamaður, fréttamaður eða bara frægur af endemum....

Eða þá að viðkomandi hefur ættboga á bakvið þig..

Venjulegt fólk með skoðanir á þessum málum á engan séns....

Hef af því verulegar áhyggjur að hópurinn verði einsleitur og lítill þverskurður af þjóðinni, og skoðanaskipti verði einstefna þeirra sem eru vanir því að selja sig og fréttir sínar, spaug sitt, fréttir sínar eða annað sem menn eru vanir að matreiða..

Hef af þessu stórar áhyggjur..

Hefur einhver annar af þessu áhyggjur...??


mbl.is Margir vilja á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hef ég....

Margoft bent á en fengið bágt fyrir... Hér eru menn og konur nefnilega að keyra  tæplega 80 kílómetra eða meira til að spara þessar rúmlega 80 krónur, en það er tæplega hálfur lítri af bensíni...

Ef þú átt bíl sem eyðir 10 lítrum og keyrir 80 kílómetra, þá þarftu að nota 8 lítra við að keyra í Bónus, og það kostar rúmlega  1.500.- krónur...

Skrítinn sparnaður það.....


mbl.is Munaði einungis 85 krónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ekki í upphafi....

Endinn að skoða...??

Ekki er ég þversum á móti stóriðju, en mér finnst það ábyrgðarhluti stjórnvalda og þeirra sem standa í svona framkvæmdum, að vera með það á hreinu þegar af stað er farið, að til sé næg orka og einnig að vera með það á hreinu hvaðan hún á að koma....

Það var ekki gert, óháð skipulagsmálum og mótbærum VG og umhverfisráðherra...

Það er nefnilega þannig þegar um jarðvarmavirkjanir er að ræða, þá er reiknistokkurinn ekki eins einfaldur þegar kemur að orkunni, eins og þegar um vatnsafl er að ræða... Það eina sem þar þarf að vita er vatnsmagn og fallhæð, og bingó þú ert með það á hreinu hvaða orku þú færð útúr dæminu, í það mesta skeikar örfáum prósentum.

Þegar kemur að jarðvarmanum, þá er annað uppi á teningnum, menn vita jafnvel ekki fyrr en búið er að bora vinnsluholuna hvort og þá hversu mikla orku hún gefur...

Því finnst mér illa að þessu staðið, algerlega óháð, því hvort menn eru með eða á móti þessari verksmiðju...


mbl.is Aukin bjartsýni vegna álvers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta ætlum við.....

Að gera og það skuluð þið samþykkja.....!!

Ég hef stundum setið svona fundi, þar sem ekkert rúm er fyrir neinar skoðanir aðrar en þær "réttu" að mati fundarhaldara...

Það er ekki samráð, eins og bent er á og því illa að málum staðið.. Sé þetta rétt....

Síðan finnst mér nú alger óþarfi að leggja pólitísk vopn í hendur ríkisstjórnarflokkanna með því að mæta ekki eins og sjálfstæðismenn eru nú að gera, menn eiga auðvitað að mæta þrátt fyrir takmarkaðan vilja til samstarfs, maður veit aldrei hvenær Steingrímur og Jóhanna sjá ljósið og fara að vinna í einhverri alvöru heimilum og öðrum til heilla...


mbl.is „Þetta eru ekki samráðsfundir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt...

Og annað eins...

Er í annað skiptið á æfinni á ferð um sunnanverða Vestfirði... Og ég segi það enn og aftur, þvílík fegurð... Þessir firðir vestan við Flókalund, eru með því fallegasta sem ég hef séð, og núna í haustlitunum er þetta alveg einstakt....   Ég er nú á Patreksfirði í fyrsta skipti og þar er einnig fallegt þó svo að sunnanverðir firðirnir milli Króksfjarðarnes og Patró séu með því fegursta sem ég hef séð hér á Íslandi....

Ég vona bara að veðrið á morgun verði okkur hliðholt þegar við keyrum norður úr og endum á Hnífsdal og Ísafirði....

Öflugt og gott björgunarsveitastarf hér í gangi sem og annarsstaðar á landinu og ég get ekki annað sagt en að ég sé stoltur af því að fá að vera þáttakandi í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem eru án ef langflottustu sjálfboðaliðasamtök á Íslandi þó víðar væri leitað....

Sjáumst...


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband