Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Hreindýr.....

Saga hreindýra á íslandi spannar aðeins um tvær og háfa öld.  fyrstu hugmyndir um innflutning hreindýra munu hafa komið frá Páli Vídalín, Lögmanni.  Hann ritaði um það í lok 17. aldar að selja ætti hesta úr landi og kaupa fyrir þá hreindýr.  ekkert varð þó úr innflutningi í það skiptið.  Skriður komst svo á málið um miðja 18. öld þegar illa áraði í landinu og lífsbjörg skorti.  Ætlunin var að hér yrði hreindýrabúskapur með svipuðum hætti og hjá Sömum í Finnmörku og var gefin út konungsskipun um að flytja til landsins Samafjölskyldu frá Noregi til að kenna Íslendingum hreindýraeldi.

Hreindýr voru flutt hingað til lands í fjórum hópum á árunum 1771-1787.  Í fyrsta hópnum voru 13 dýr sem komu frá Finnmörk í Noregi og voru sett á land í Vestmannaeyjum og síðan voru þau flutt þaðan upp í Fljótshlíð.  Þau munu öll hafa verið horfin um rúmum áratug síðar.

Árið 1777 kom svo stærri hópur til landsins, samtals 23 dýr sem sett vori í land í Hafnarfirði.  Sú hjörð hélt til á suðvesturhorni landsins og virðast hafið komið vel af og um miðja 19. öld voru dýrin allmörg, en eftir það fór þeim fækkandi, og síðustu dýrin úr þeirri hjörð sáust á lífi við Kolviðarhól um 1930.  Þriðji hópurinn, sem kom til landsins taldi um 35 dýr og var þeim sleppt á Vaðlaheiði við Eyjafjörð.  Dreifðust þau víða um Norðausturland en eftir miðja 19. öld fór þeim fækkandi og síðustu dýr úr þeirri hjörð sáust á lífi um 1936

Líklegt má telja að veiðar hafi verið stærsti orsakavaldurinn í því að þessir hópar hurfu með öllu upp úr 1930

Fjórði og síðasti hreindýrahópurinn kom til landsins árið 1787 og var settur á land í Vopnafirði.  Reyndar hafði áætlunin verið að að fara með dýrin norður í land en hafís stöðvaði siglinguna.  Árið 1783 höfðu Lakagígar gosið mesta hraungosi sem sögur fara af á jörðinni.  Í kjölfarið fylgdu hin ægilegu Móðuharðindi.  gosgufurnar og askan voru svo eitruð að grasbrestur varð og fénaður féll umvörpum, um 80% sauðfjár og um 50% nautgripa.  Talið er að nær 10.000 manns eða 20% þjóðarinnar hafi látist á árunum 1783 - 1786.  Ein af ástæðunum þess að villt hreindýr hafa haldið velli á Austurlandi er sú að norðan Vatnajökuls er þrátt fyrir alt tiltölulega snjólétt og lítið um mannaferðir.

 Hreindýrahjörðin sem kom á land í Vopnafirði taldi 5 tarfa og 30 kýr.  Núverandi hreindýrastofn á íslandi er allur kominn af þessum dýrum.  En þrátt fyrir það að stofninn sé í góðu jafnvægi nú leit  oft út fyrir að þessi hópur færi sömu leið og þeir fyrri.  Þess má geta að líklega voru dýrin ekki nema um 100 um aldamótin 1900 enda voru þau alfriðuð af Alþingi árið 1901 og líklegt má telja ef það hefði ekki komið til þá hefði þessi hópur horfið með öllu einnig.

Vangaveltur hafa verið uppi um það að dreifa hreindýrum víðar, en á Austurlandi, en ennþá hefur ekki komið til þess.  Má þó búast við því að hreindýr geti með góðu móti þrifist víðar á íslandi en á Austurlandi.  Myndi þetta vera veiðimönnum kærkomið, því eins og staðan er í dag eru milli 3 og 4 umsóknir um hvert veiðihleifi sem gefið er út og fá því færri en vilja. 

 


mbl.is Vara við hugmyndum um hreindýr á Reykjanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér er....

slétt sama hvort að skatturinn sé táknræn eður ei, það á að setja hann á, en hann á líka að vera hátekjuskattur ekki meðaltekjuskattur eins og hann var.

Þessi skattur var lagður á alla sem komust að mig minnir yfir 3 miljónir í árslaun (það leiðréttir mig einhver ef að ég fer með rangt mál) og því kom hann illa  niður á fólki sem var að vinna fyrir stórri fjölskyldu og nýrri fasteign (lesist fjölskyldufólk á besta aldri) Og þessi sami hópur lennti líka í því að á sama tíma (af því að launin voru svo "há") að barnabætur og vaxtabætur skertust all verulega.

Þannig að þessi hópur fólks var sligaður af skattbyrði.

Það á að setja þennan skatt á þá sem eru með miljón eða meira á mánuði ekki fyrr, og á hjón sem eru með 2 eða meira ekki fyrr.

Það mætti líka skoða það að kippa skattinum upp í 50% en þá yrðu skattleysismörk að vera í það minnsta 280-300þ

Þessu kasta ég bara hér fram án þess að hafa skoðað það neitt, eða með öðrum orðum bara hugmynd, kanski gengur hún upp, kanski ekki..

En HÁTEKJUSKATT á að setja á ekki meðaltekjuskatt....Angry


mbl.is Hátekjuskattur bara táknrænn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi??

Nú er að koma uppúr dúrnum hvað það er sem við "verðum" að gera fyrir lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.  Hækka álögur á almenning, og ekki bara með auknum gjöldum, heldur með hækkunum á lánunum okkar því að þau eru jú verðtryggð og þetta hleypir upp vísitölunum.

Kæmi mér ekki á óvart  að afborganir af "hefðbundnu" íbúðarsjóðsláni myndi hækka um 10-12% eftir þessi ósköp.

Þetta er náttúrulega bara rugl og vitleyasa, það er lítið mál að spara duglega í ríkisrekstri, það væri t.d. hægt að skera utanríkisráðaneytið niður um svona 60% án þess að það komi verulega niður á samskiptum okkar við önur lönd og þar fengist sennilega meiri peningur heldur en með þessu skattahækkunum öllum til samans.

Niðurskurður og aðhald er það sem þarf en ekki auknar álögur, því að nú þegar fera sennilega 6-7 krónur af hverjum 10 í ríkiskassan hjá hinum almenna launþega í formi staðgreiðslu, virðisauka og annara beinna eða óbeinna skatta.

Er það ekki alveg nóg???


mbl.is Hækkun gjalda áfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jamm enn og aftur...

Reynir á ósérhlífni þeirra sem vinna sjálfboðavinnu fyrir björgunarsveitirnar.  Þessi stærstu sjálfboðaliðasamtök Íslands með mikið af bráðsnjöllu og duglegu fólki innan sinna raða, eru bráðnauðsynleg og verða bara hreinlega að vera til staðar.

Því minni ég ykkur á það að þegar kemur að því að fjárfesta í flugeldum fyrir næstu áramót, að versla nú af þeim sem eru tilbúnir 365 daga á ári 24 klst á sólarhring að bjarga öllu því sem bjargað verður, hvort sem það eru fiskikör af bryggjukanti eða einhverjir einstaklingar í margskonar vandræðum.

Oft var þörf en nú er nauðsyn, því að það þrengir að hjá þessum félagsskap sem og öðrum í þjóðfélaginu...

Koma svo...


mbl.is 210 sinntu útköllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband