22.5.2008 | 14:15
Iss...
Bara 106 yfirvinnutímar í einum mánuði, það hljóta fjölmargir íslendingar geta toppað það nokkuð vel.
Miðað við hefðbundin vinnutíma (um 180 klst á mánuði.) gerir þetta samtals 286 klst. sem þýðir 13 klst á dag og þá er ekki unnið um helgar. Ef við bætum 4 laugardögum inní dæmið og setju 8 klst á hvern, þá þýðir það rúmlega 11 klst á virkum dögum.
Kannast ekki einhver við það að vinna frá 8- 7 , 6 daga í viku?? eða jafnvel mun meira??
Þetta er svipuð vinna.....
Síðan getum við auðvitað skoðað vertíðartarnirnar þar sem fólk var að vinna frá 6 á morgnana til 8 á kveldin 7 daga vikurnar í kanski 6-8 vikur samfellt, það er mun meira en þetta, eða um 420 klst í mánuði.
En ég er ekki að mæla því bót á nokkurn hátt að menn vinni of mikið, þessu á auðvitað að stilla í hóf eins og öllu öðru
Góðar (vinnu) stundir
Toyota sker upp herör gegn vinnuölkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
180 klst,það er bara lítið.
Ólafur fannberg, 22.5.2008 kl. 14:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.