Er fall fararheill???

Staður:  Keflavíkurflugvöllur  Kl: 17:00 að staðartíma 

Ekki byrjar það vel.  Búið að aflýsa fluginu til Baltimore og við sitjum hér í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og bíðum eftir því að eitthvað verði ákveðið um það hvernig þetta verði leyst.  Það byrjaði reyndar á því að við þurftum að fara sólarhring fyrr til Borgar óttans en áætlað var, en það var vegna slæms veðurútlits og við sitjum hér vegna sama hlutar nema nú má taka "útlitið" af og notað bara veðrið.

En þetta skýrist nú vonandi á næsta klukkutímanum eða svo hvernig verði brugðist verður við þessu.

Það er reyndar smá ljós punktur í þessu :  Bjórinn er frír þegar þú flýgur á Buisness Class!!   Wink

En nú verð ég að fara og athuga hvort að Ferðaskrifstofa Flugleiða geti reddað okkur til Charleston með einhverjum öðrum hætti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

ég vona að ég þurfi ekki að leysa út frían bjór þegar ég er á leið heim þann 20 þennan mánuð

Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.11.2006 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband