21.8.2007 | 19:51
Við erum stödd......
Í vinalegum fallegum bæ úti á landi.
Við horfum í kringum okkur, og þá kemur í ljós að það eru 300 metrar í grunnskólan og svipað í leikskólan, það eru 600 metrar í matvöruverslunina á staðnum 350 metrar í heilsuræktina og íþróttahúsið, 800 metrar í kirkjuna og svipað í heilsugæsluna, og samt er húsið sem við stöndum við alls ekki í miðjum bænum.
Ekki nóg með það, heldur eru 150 metrar í gjöfulan berjamó, og ef maður gengur 50 metra í viðbót getur þú týnt lerkisveppi og á veturna gætir þú veitt rjúpu, en þarft reyndar að labba um 800 metra í viðbót því að ekki má skjóta rjúpu innanbæjar.
Þennan dag sem við erum þarna eru hreindýraveiðimenn að veiðum í ekki nema um 5 km fjarlægð og úti á spegilslettum firðinum eru tveir félagar að draga þorsktitti á sjóstöng sér til búdrýginda og ánægju.
Ef að fólk kýs gönguferð í nánast ósnortnu umhverfi þarf ekki nema að rölta í 10-15 mínútur og þá er bærinn og oll ummerki um annað en ósnortna náttúru, horfið sjónum okkar.
Hvar finna menn svona einstakan stað með öllum þessum gæðum??
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Kongó maður, Kongó.
Björgvin Valur (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 20:36
"Þú ert á góðum stað....Fjarðarbyggð"
Djöfull er ég samála þér, ekkert jafnast á við litla vinalega staði úti á landi. En eitt skil ég ekki, hvers vegna vill fólk búa á höfuðborgarsvæðinu þar sem það þarf að borga jafn mikið fyrir blokkaríbúð og fyrir einbýlishús hér? Samt er ekki lægri laun hér en í bænum. Börnin geta leikið sé úti í guðsgrænni nátúruni og fullorðna fólkið getur veit fisk og fugla, farið á fjöll, sleða og skíði. Stutt í allt, vinnuna og rætina en í bænum þarf að sitja í bíl í 40mín til að komast í næstu búð. HVAÐ ER Í GANGI???
Gylfi Frímannsson (IP-tala skráð) 22.8.2007 kl. 21:23
Fallegustu staðir landsins ef ekki heimsins eru á austfjörðum það er ekki spurning. Þessi lýsing getur reydnar átt við marga staði þar en geri ráð fyrir að þú sért að svolítið litaður í tali og sért að tala um Reyðarfjörð
Óttarr Makuch, 26.8.2007 kl. 14:56
Egilsstaðir.is , Drengur !!!
Ingólfur Þór Guðmundsson, 26.8.2007 kl. 16:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.