5.11.2006 | 19:00
Jæja..................
Staður: Park Hótel Reykjavík Kl: 18:55 að staðartíma.
Jæja það er ljóst að ekki verður flogið til Jú Ess Ei í dag og því er búið að "parkera" á Park Inn í Reykjavík, að sinni. Allar líkur eru á því að ekkert verði úr flugi fyrr en seinnipartinn á morgun, en það er ekki einusinni alveg víst því að það verður mikið hringl á fluginu á morgun vegna allra þessara frestanna og aflýsinga í dag.
Það hefði nú bara verið betra að vera heima í gær, skreppa á fjall og myrða nokkra saklausa fugla af kyni hænsna, og eyða svo kveldinu í gær og deginum í dag með fjölskyldunni.
En það verður víst ekki á allt kosið í dag frekar en endranær....
En þegar ég hugsa málið aðeins betur þá hefi ég nú líklega ekki verið heima hjá mér í dag, ef ég hefði verið heima, ég hefði eflaust verið eitthverstaðar úti með félögum mínum í Ársól, að hefta fjúkandi hluti, sjá hér:(http://frontpage.simnet.is/arsol)
Meginflokkur: Ferðalög | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt 6.11.2006 kl. 16:04 | Facebook
Athugasemdir
Shitturrrinn!! Það var reyndar frekar rólegt í fok heftingunum,
Hafliði Hinriksson, 6.11.2006 kl. 23:46
Shitturrrinn!! Það var reyndar frekar rólegt í fok heftingunum, en þvílík reyðinnar bísn af dósum í kvöld!!! kofinn er kjafftfullur upp í mæni.
Hafliði Hinriksson, 6.11.2006 kl. 23:47
Simmi ætlar að hringja í þig þegar hann mætir austur sem verður örugglega í vikunni.
Eiður Ragnarsson, 7.11.2006 kl. 02:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.