10.6.2009 | 15:46
Sparisjóður....
Henti sparnaði móður sinnar á haugana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2009 | 15:45
Voru....
Mús fannst í maltbrauði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2009 | 01:24
Stór orð falla oft fljótt í gleymsku...
"Ef ríkistjórnin vill ekki taka á vandanum, þá er hún hluti af vandanum og við þurfum að losna við hana"
Þetta segir Steingrímur fyrir kosningar, ætli hann íhugi því afsögn nú??
3.6.2009 | 23:24
Furðuleg rök...
Hjá henni Jóhönnu "vini" litla mannsins.... Setjum upp lítið dæmi...
Jón skuldar 20 miljónir, og á bakvið þetta standa eignir uppá 18 milljónir.. Jón er því með neikvæða eiginfjárstöðu og á því samkvæmt Frú Jóhönnu að vera í töluverðum vandræðum..
Afborganir Jóns af þessum 20 milljónum eru um 120þ á mánuði, en nettótekjur Jóns eru um 400þ og því er hann í litlum vandræðum með að standa í skilum...
Siggi hinsvegar á fína eign sem er metin á 40 milljónir og hann skuldar þar ekki nema 30 miljónir. Eigið fé Sigurðar er því 10 miljónir eða 25% sem er samkvæmt frú Jóhönnu bara assgoti gott... Og hann á bara að vera í fínum málum....
En afborganir Sigga eru af þessum 30 milljónum eru um 180þ á mánuði, sem væri í fínu lagi ef tekjur Sigurðar væru ekki nettó 220þ.... S
Sjá ekki allir hversu heimskuleg rök þetta eru hjá Heilagri Jóhönnu?? Það eru margar breytur sem spila mun stærra hlutverk heldur en eiginfjárhlutfall og eitthvað svona fansí pansí útreikningar....
Það má vera að þessi dæmi hér að ofan séu eitthvað öfgakennd en það er bara til að sýna hversu heimskuleg röksemdarfærsla hæstvirts forsætisráðherra er...
Að lokum legg ég til að vísitla lána verði leiðrétt um að minnsta kosti 20%
Skuldavandinn minni en talið var | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.5.2009 | 18:58
Hef s.s...
Ekki miklu við þetta að bæta nema þetta hér: http://eirag.blog.is/blog/eirag/entry/873779/
Þetta er ekki ienfalt mál, það er í það minnsta á hreinu..
Innköllun veiðiheimilda hefjist 2010 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2009 | 21:04
Smá vangaveltur....
Ekkert kerfi er gallalaust og kvótakerfið er það ekki heldur. Ég hef engar töfralausnir í mínum kolli hvernig á að breyta því, en ég veit að það er ekki auðvelt mál.
En í þessari umræðu velti ég einu fyrir mér.
Það er talað mikið um "sægreifa" og "kvótabraskara" í þessari umræðu og maður fær það á tilfinninguna að allir sem eiga útgerð og draga fisk úr sjó séu ótíndir glæpamenn og óþokkar.
En er það svo???
Lítum aðeins á málið....
Ungur maður sem er af þriðju eða fjórðu kynslóð sjómanna ákveður að fara út í sjómennsku og kaupa sinn eigin bát í árdaga kvótakerfisins, eða í þann mund sem ákveðið var að taka það upp. gefin var út viðmiðunartími og afli veiddur á þeim tíma átti að ákveða hans hluteild í kvótanum. Við skulum ekki gleyma því að hvatin að kvótasetningunni var síminnkandi afli og augljóst að það stefndi í hrun fiskistofna með þáverandi kerfi, hvatinn var því göfugur, sama hvað hver segir.
Þessi sami maður fær síðan úthlutuðum kvóta, og hann unnir nokkuð vel við sitt, veiðir sinn kvóta ásamt því að seilast í tegundir sem enn voru ekki komnar í kvóta, til að drýgja tekjurnar.
Tímimnn líður og smá saman byggir þessi sami maður upp sitt fyrirtæki með dugnaði og elju, mörg tækifæri gefast til að auðgast vel á því að selja kvótan og útgerðina en hanns vilji stendur ekki til þess, hann vill vinna við þetta, hefur gaman af því og afkoman er nokkuð góð þó ekki sé hægt að tala um að menn vaði í peningum, en í það minnsta er hann í svipuðum sporum og þeir sem eru ofarlega í millitekjuhóp óslendinga.
Þess má geta hér að margir af samferðarmönnum hans eru hættir og farnir á snemmbúin eftirlaun í boði fjársterkra aðila sem voru í því að auka sinn kvóta með því að kaupa hann.
Enn líður tímin, en nú er svo komið að allar fisktegundir eru konar inn í kvóta og því ekki um það að ræða að drýgja tekjurnar með þessum hætti, ekki dugir þó að gefast upp heldur er ákveðið að bregðast við skerðingu með því að fjáfesta í einhverjum kílóum og halda áfram að róa.
Þegar hér er komið við sögu hefur viðkomandi sjómaður unnið við þetta í rúm 20 ár, afkoman er enn viðunandi, báturinn er nýr og kvótin er nægut til að standa undir þeim fjárfestingum og skulbindingum sem ráðist hefur verið í, hvort sem um er að ræða kvóta eða búnað.
En þá birtist Vinstri stjórn VGSamfylkingar og ákveður að skerða veiðiheimildir hans um 5% á ári og leggur bann við frekari kvótakaupum, og ekki er á hreinu hvernig menn eiga að fá endurúthlutaðar aflaheimildir.
Á 4 árum rýrnar kvótinn um 20% sem þýðir að ekki er hægt að standa í skilum, selja verður bátinn, en ekki fást neinir kaupendur vegna óvissu um framtíð útvegsins, því er aðeins ein leið fær, gjaldþrot.
Þessi saga er kanski óttarleg svartsýni í mér, en ég lít svona á málið:
Það er talað um réttlæti og það eigi að innkalla allar aflaheimildir skilyrðislaust og helst á einni nóttu. En hvað með menn í sömu sprum og okkar söguhetja hér fyrir ofan, heiðarlega harðvinnandi menn sem eru ekki að hugsa um það að græða sem mest, heldur hugsa um það eitt að byggja upp fyrirtæki sem veitir þeim þak yfir höfuðið og kanski aðeins rúmlega það.
Eigum við einhvern rétt á því að taka þeirra lífsviðurværi af þeim???
Allir kallaðir að borðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2009 | 16:24
Björgunarsveitin...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2009 | 16:01
Viltu....
ís, Björn??
Þetta fer nú að verða daglegt brauð, eigum við ekki að setja kvekindið í húsdýragarðin, þetta er eiginlega að verða partur af íslenzkri spendýraflóru....
Þetta verður vonandi ekki sama móðursýkni og áður....
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2009 | 13:25
Og þó svo....
hann hefði unnið gegn honum???
Það væri nú ekki alveg óskiljanlegt í mínum huga.
En við Árna er besta að segja: rífðu skóginn úr auganu á þér drengur.....
Segir ásakanir Árna út í hött | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2009 | 01:28
Svo lengi sem sól gyllir jörð...
Fyrirsögnin er náttúrulega í engu samræmi við það sem ég ætla að skrifa um... En í dag er blogg afmæli hjá mér og telur þetta nú 3 ár í heildina.
Ýmislegt hef ég bullað á þeim tíma og eflaust finnst einhverjum ég eflaust sagt alveg yfirdrifið nóg... Vonandi hef ég hreift við einhverjum bæði með mér og á móti, er það jú ekki það sem menn eru oft að reyna að gera á þessum vettvangi, fá viðbrögð??
En sennilega er ég ekki nógu beittur því að ég fæ yfirleitt ekki mikið af beittum athugasemdum, með eða á móti, en það er bara ég, ekki gefin fyrir það að valda einhverjum óróa nema að það sé eitthvað sem skiptir virkilega máli.
En hvað um það......
Hef verið afspyrnulatur að setja eitthvað hér inn að undanförnu, veit s.s. ekki hvað veldur, en kanski eru það misvitrir bloggarar sem telja sig vita allt um allt, þegar kemur að framboðsmálum fyrir Þingkosningarnar sem eru að bresta á.
Samsæriskennigar og óhróður af öllu tagi sturtast yfir landslýð, og nánast bara hundleiðnlegt að fara í gegnum það allt því að það er eitthvað svo yfirdrifið og engin málefnaumræða í gangi.
Allt byggist á nógu stórum fullyrðingum til að stuða og þá fá menn viðbrögð, en einhver talar á málefnalegum nótum og leitar eftir málefnalegum athugasemdum þá gerist ekkert, engin hefur áhuga á þesslags umræðu, fólk vill bara fá eitthvað nógu stuðandi og helst eitthvað sem þolir ekki dagsljósið og það má alveg vera logið eða uppspuni, bara ef það er nógu krassandi, þá er fjör...
Mér finst þetta ekki vera góð þróun.
Tökum sem dæmi þá umræðu sem hefur átt sér stað um 20% leið Framsóknar.
Það er alveg með ólíkindum hvað umræðan um þetta mál hefur verið ómálefnaleg, það eina sem menn hafa gert (andstæðingar) er að kasta fram fullyrðingum um óhóflegan kostnað án þess að þurfa að rökstyðja neitt og það er étið upp gagnrýnislaust, einfaldlega af því að þessu er skellt fram með nógu miklu offorsi.
En svona í tilefni af mínu bloggafmæli þá ætla ég að einfalda málið aðeins:
Siggi lánar mér 1.000.- kr. En til þess að geta lánað mér þurfti hann að fá lánað hjá vini sínum Jóni, sömu upphæð.
Siggi lendir sðían í vandræðum og semur við Jón um það að hann fái að borga aðeins 500.- til baka og Jón samþykkir það.
Síðan lendi ég í vandræðum og þá ákveður Siggi að ég þuefi ekki að borga nema 800.- kr til baka til að allt gangi upp.
Siggi er íbúðalánasjóður og íslensku bankarnir, Jón er erlendur fjármagseigandi og ég er hinn almenni íslenski skuldari.
Þetta er ekki flókið, þetta er einfalt, og þetta er ekki að kosta Ríkissjóð miklar upphæðir, sennilega kostar þessi leið mun minna en hækkaðar vaxtabætur VGSamfylkingar, en í sínum hroka og fílabeinsturni fanst þeim að það gæti ekki verið að neitt sem Framsókn legði til málana gæti verið þess virði að skoða það...
Það er sama hvaðan gott kemur, í þeirri stöðu sem við erum í dag höfum við ekki efni á því að vera með einhverja flokkadrætti. ef hugmyndin virðist vera góð þá á að skoða hana...
Góðar stundir
23.4.2009 | 22:50
Tækifæri...
til frekari uppyggingar á Austurlandi felast einmitt í svona hlutum...
Öflug inn og útlfutningshöfn á Reyðarfirði er einn af þeim möguleikum sem okkur eru nauðsynlegir til að fá hér meiri atvinnu og fleiri tækifæri.
Þegar þetta verður að veruleika þá er Mjóeyrarhöfn orðin stærsta einstaka höfn á landinu og aukin skipaumferð skapar fleiri störf og tækifæri.
Og svo skilar þetta miklum tekum fyyrir Fjarðabyggðarhafnir og Bæjarsjóð Fjarðabyggðar í formi fasteignagjalda.
Sótt um lóð undir olíubirgðastöð á Reyðarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.3.2009 | 17:23
En á Austurlandi...
þar sem allt á að vera í hers höndum samkvæmt okkar hæstvirtum umhverfisráðherra??
Ég held að það hafi í það minsta 7 íbúðir/hús verið seld í Fjarðabyggð í Febrúar, og kanski eru þau fleiri, því að ég hef nú ekki aðgang að sölutölum...
En það er kanski ekki frétt....
Fasteignasala eykst á milli mánaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |