27.11.2006 | 09:40
Jólin, jólin, allstaðar......
Ekki eru nú nema u.þ.b. mánuður til jóla og verða þau mætt á svæðið áður en maður getur sagt Geithellnahreppur.
Ég hef heitið sjálfum mér því í mörg ár í röð að "missa" mig ekki í jóladæminu og ég ætla að gera það líka núna, en reyndar hefur árangur af þessu heiti verið frekar misjafn á undanförnum árum. En nú skal það ganga, það verður ekki "offjárfest" í jólunnum þetta ár það er á hreinu.
Ekki má samt miskilja mig þannig að ég sé með eitthvað antípat á þessari ágætu hátíð, síður en svo, en það er bara orðið þannig að þetta er eiginlega meiri hátíð verslunareigenda en eitthvað annað, og það er miður.
Reyndar held ég að hátíðinn verði ánægjulegri ef minna er fjárfest því að þá verða áhyggjurnar bara minni af því hvernig á að standa skil á því sem fjárfest er í. Þetta á að snúast um eitthvað annað en linnuluausar verslunarferðir gjafaflóð og máltíðir sem fara yfir öll mörk velsæmdar í magni og úrvali.
Gleðileg jól
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2006 | 14:50
Vandræðagangur
Það er nú alveg merkilegt hvað maður getur orðið háður hlutum, t.d. eins og núna er fartölvan mín í vetrarfríi í Reykjavík, þar sem Jón bróðir ætlar að reyna að hressa eitthvað uppá hana, en hún var farin að verða ansi þreytt eftir linnulitla notlkunn síðustu 3 ára.
Í þessum kosta grip eru nánast öll mín skjól er snerta pólitíkina, björgunarsveitina og bara nánast allt annað sem ég þarf bráðnauðsynlega að komast í þessa daganna.
En hvað um það.
Var áðan að lesa um prófkjör Framsóknar í NV kjördæmi þar sem sumir flokksmenn hafa á lofti miklar samsæriskenningar um þá kostningu, og telja að brotið hafi verið á sér með samráði, ég veit ekki alveg hvað svona pælingar eiga að fyrirstilla, en þetta virðist vera regla frekar en undantekning þegar prófkjörið fer ekki eins og menn vilja, samanber önnur prófkjör sem í gangi hafa verið.
Það er alveg einkennilegt að geta ekki tekið ósigri með öðrum aðferðum en þessum, það er nú einu sinni þannig, að það er nú ekki á vísan að róa í þessu og ef menn á annaðborð hætta sér í þenna slag þá verða menn að búa sig undir það hlutirnir fari ekki endilega á þann veg sem menn kjósa.
Einn frambjóðandi undanfarinna vikna hefur ekki verið að berja lóminn með þessum hætti og tel ég það gott merki um félagslega þroska sem því miður virðist ekki vera til staðar hjá flokksbróður mínum Kristni H, en það er Pétur Blöndal.
Hann lenti mun neðar en hann gerði sér vonir um, og mun neðar en hann átti skilið finnst mér. Ekki það að ég sé altaf samála því sem Pétur heldur á lofti, en hann er þó allavega oftast sjálfum sér samkvæmur og málefnalegur. Mættu aðrir frambjóðendur í prófkjörum taka hann sér til fyrirmyndar þegar kemur að því að bregðast við úrslitum sem ekki eru eftir þeirra höfði.
Nú fer að líða að því að framboðfrestur á lista Framsóknar í NA kjördæmi sé liðinn og ekki bólar á neinum í þriðja sætið enn, og hef ég orðið töluverðar áhyggjur af því að ekki skuli neinn vera komin til hér enn í höfuðvígi Framsóknar. Eitthverjir hafa þó verið orðaðir við þriðja sætið og ber þar hæst ritara flokksins, Sæunni. Ég tel nú reyndar ekki fullreynt ennþá í þessu máli en ég held að það yrði betra ef okkur myndi nú hugnast að setja þarna inn einhvern góðan Austfirðing, frekar en að fara flytja inn aðila utan af landi, með fullri virðingu fyrir Sæunni þó.
Við þurfum á góðum kandidat að halda í þetta sæti, því eins og þróunin virðist vera þá er nú ekki víst að við fáum jafn góðakosningu og síðast, þó að maður voni það að sjálfsögðu.
En þetta fer að skýrast.
20.11.2006 | 08:37
Kominn heim í heiðardalinn......
Jæja þá er maður loksins kominn heim.
Ég lét hugan reika um atburði síðustu tveggja vikna í vélinni á leiðinni heim, og var að rifja þá upp einn af öðrum þegar ég heyrði gamalkunnugt lag í útvarpinu um borð. Um var að ræða gamalt U2 lag, Unforgetable fire og dró það fram margar gamlar og góðar minningar frá því ég var í heimavist í Bár á Djúpavogi.
Þarna rijfaðist upp viðvarandi sturtu og vatnsleysi á heimavistinni, ekkert bað í viku, þrátt fyrir að spilaður væri fótbolti á hverjum einasta degi á drullugum malarvellinum.
Þegar frí var gefið í skólanum svo að hægt væri að vinna alla þá þá síld sem barst að landi með gamla Stjörnutindi.
Þegar það var regla að skólakrakkarnir sem voru að vinna í síldinni voru sendir heim kl 7 en ég gleymdist inní salthúsi og var ekki sendur heim fyrr en kl 2 um nóttina og þurfti að ræsa Röggu heimavistarstjóra til að komast inn.
Þegar Róbert, Hólmar og Gulli stálu plasthjólinu hans Gunnars Smára og hjóluðu allir 3 á því saman niður Klifið, en enduðu á hausnum vegna þess að hjólið brotnaði í tvent fyrir framan Vegamót. Og svo skömmuðust þeir í Smára fyrir að eiga ekki almenilegt hjól til að stela.
Þegar Hansi kennari barði Eirík með stól svo að hann handlegggsbrotnaði, og svo var Hansi spurður að því daginn eftir, hvort að það væri hægt að "stóla" á það að það yrði leikfimi.
Þegar allir á vistinni voru í sannleikanum og kontór inni í meyjarskemmu (en það var herbergi Lóu, Láru og Helenu alltaf kallað).
Þegar Siggi prestur gaf frí í Enskutíma aðf því að hann varð að fara út og skjóta flækingsfugla.
Og margt margt fleira.
Þetta voru góðir tímar, engar áhyggjur, fullt af draumum og feikilegt fjör.
Það er merkilegt hvað eitt lítið lag getur kveikt margar minningar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2006 | 05:07
Er nám vinna eða lístíll???
Jæja þá er búið að troða enn meira inní höfuðið á mér um efnafræði málma og ýmislegt fleira sem tengist málmvinslunni í steypuskálanum. Nú glittir í endin á þessari Ameríkuhreppsför minni, en við komum til með að halda áleiðis á morgun heim á leið, fljúgum héðan frá Pittsburg um kl 16:00 að staðartíma og fljúgum þaðan til Boston og frá Bostin verður svo flogið heim.
Þetta er nú búið að ver nokkuð lærdómsríkt, mest hefur komið á óvart hvað hér eru allir einstaklega kurteisir (ekki það að ég hafi búist við einhverri ókurteisi) en það er áberandi hjá starfsfólki flugvalla og annarra staða sem við komum á hvað kurteisi er greinilega í hávegum höfð.
Pittsburg kom einnig á óvart, allavega sá partur hennar þar sem við höfum haldið til, það má eiginlega segja að þetta sé risastórt sveitaþorp, hér eru göturnar lagðar milli skógarvaxinna hæða og húsin eru illsjáanleg fyrir skógi og, eins og áður sagði eins og lítil sveitabýli með verslunar og þjónustugötum á milli.
En semsagt á föstudagsmorgun kem ég loksins heim og þetta verður líklega síðasta færsla mín héðan í bili
Adios
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2006 | 04:41
Ánægður....
Já nú er ég ánægður með Valgerði (eins og oft áður reyndar) þetta var löngu tímabært að þjóðarmorði Ísraela í Palestínu yrði mótmælt, en það hefur verið í gangi með þegjandi samþykki alþjóðasamfélagsins síðastliðin 40 ár eða meir.
Nú er mál að linni þó að ég telji líkurnar því miður ekki miklar.
Og ég kaupi ekki skýringar sendiherrans, sagan í gegnum tíðina sýnir að "mistök" hafa nú yfirleitt ekki stjórnað mannfalli í Palestínu.
![]() |
Sendiherrann segir Ísraela ekki ráðast vísvitandi á óbreytta borgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2006 | 06:48
Aukning á vegafé
Tölfæðin talar sínu máli, það þarf að stórauka vegabætur á aðalakstursleiðum úti á landi með skipulegum hætti. Fjarlægja hættulegustu og umferðarþyngstu kaflana fyrst og það sem allra fyrst.
Þetta á að vera forgangsmál á næstu árum, en ekki á næstu áratugum eins og stefnan virðist vera núna.
Og hana nú!!!!!
![]() |
Fleiri banaslys úti á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2006 | 06:13
Djö..... Helv.... Andsk.....
Þráðlausa net drasl á þessum hótelum alltaf hreint. Ég var búinn að setja hér prýðisgóða sögu af viðburðum dagsins og ætliða að vista hana þegar allt datt út.
En það þýðir ekki að gráta Björn bónda......
Ég er semsagt lentur í Pittsburg, stálborginni og á næstu dögum á að nema málmfræði, þ.e. hegðun málma í vinnslu og í bland við hvorn annan. (eða eitthvað í þá veru)
Það verður eflaust nokkuð fróðlegt og það er alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. En einnig glittir í heimför en það verður farið heimleiðis á fimtudag, löng ferð senn á enda runnin...
Í dag flugum við um þvera Ameríku frá Seattle til Cincinatty og þaðan hingað uppeftir. Þetta tók að sjálfsögðu allan dagin og við lentum ekki hér á hótelinu fyrr en um miðnætti. Reyndar var þetta einn besti ferðadagurinn hingað til ekki neinar tafir, týndur farangur eða týndir meðlimir úr hópnum og flugvélarnar með besta móti, en þær hafa nú ekki verið mjög rúmgóðar fram að þessu.
Ég set meira inn á morgun
Góða nótt (eða góðan dag)
Ferðalög | Breytt 16.11.2006 kl. 04:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.11.2006 | 02:23
Jæja.....
Smástund er nú liðin síðan ég páraði eitthvað hér inn, en það hefur einfaldlega vantað orku til að klára það þar til nú.
Síðast vorum við í Texas þar sem steikurnar voru á stærð við lambalæri og engi leið að innbyrða það allt saman, en þaðan var haldið áleiðis til Wenatchy í Wasingtonfylki en þar rekur Alcoa eitt álverið enn.
Lagt var í hann frá Austin um kl 16:oo og þaðan var flogið til Salt Lake City, en þar var stoppað stutt, og farið í næstu flugvél sem átti að fara með okkur til Seattle, en eitthvað bilaði í þeirri vél þannig að við þurftum að lenda aftur og bíða meðan flugvirkjar athuguðu vandan og bætt var elsdsneyti og þetta þyddi um klst í bið. Því næst var lennt í Seattle, en vegna tafarinnar þurftum við að hlaupa í spretti í gegnum alla flugstöðvarbygginguna og rétt náðum vélinni til Wenatchy, en hún beið meira að segja eftir okkur í enar 15 mínútur til að þetta gengi, en að sjálfsögðu varð farangurinn okkar eftir í Seattle.
Þegar við lentum í Wenatchy var klukkan að verða 12 á miðnætti að staðartíma en þá höfðum við verið á ferðinni síðan kl 16:00 og það gerir 10 klst því að tímamunurinn er 2 klst. Það var mjög gott að skríða inn upp í rúm og sofna eftir þennan langa dag.
Wenatchy er vinalegur lítill bær um 300 km fyrir austan Seattle en í þessum dal búa um 50.000 manns og aðalatvinna þeirra er ræktun ávaxta og álvinnsla. Þarna kíktum við á enn eitt álverið og aíðan var flogið til Seattle þar sem við erum nú og loksins slökum við aðeins á ekki veitti af eftir allt þetta ferðalag. Fórum öll saman út að borða í gærkveldi, og slökuðum á en það var nú ekki farið út á lífið því að allir voru líklega of þreyttir til þess.
Í dag rölti ég hér um miðbæ Seattle og skoðaði hann í rólegheitum, verslaði pínulítið og slakaði á, og það var mjög ærkomið
Sí jú arond
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.11.2006 | 05:57
Eitt stykki dauð belja....
Í dag var aldrei þessu vant ekkert flogið og ég er á sama staðnum 2 nætur í röð. Við byrjuðum daginn á morgunmat eins og lög gera ráð fyrir, og síðan var rennt til Rockdale til að skoða.. já einmitt steypuskála. Eiddum deginum í það ásamt því að fara yfir mögulega byrjunarörðugleika í okkar tækjum, sem sett verða upp í okkar skála, en þarna hafa starfsmenn aðiens meiri reynslu en við, ehh það er að segja við höfum enga og þeir ca 50 ár.
En þegar því var lokið var farið út að borða á veitingastað sem var nú frekar sjoppulegur, en maður minn hvað maturinn var góður, og steikurnar voru svona, ja hvað skal segja ca hálf belja eða heil eftir því hvarsu svangur þú varst. Og fljótt frá sagt þá var engin leið að klára eitt stykki steik af stærri gerðinni
En það er rétt sem sagt er, eki panta stórt af nienu í Ameríku því að það er RISASTÓRT!!!!!!
Ég veit að það hefur verið kvartað yfir myndaskorti en ég hef nú ekki tekið mikið af myndum (enda lítið annað séð nema innviði álvera og flugstöðvarbygginga) en um leið og eitthvað kemur af myndum set ég þær inn
Sjú
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.11.2006 | 06:40
Langur dagur...
Staður: Best Western Taylor Inn, Austin Texas Kl: 00:00 að staðartíma (06:00 á Rfj)
Jæja, þá er þessi dagur á enda runinn og allt gekk vel í dag. (do you belive it...)
Fór á fætur kl 5 í morgun og beint á flugvöllin í Baltimore, því að ég átti flug kl 7 og manni er víst ráðlagt að vera mættur tveimur tímum fyrir brottför í innanlandsflug hér, en 3 tímum fyrir brottför í millilandaflug. Öryggisgæslan er ansi mikil en lengi má illu venjast svo gott þyki.
Flugið til Charlotte var frekar stutt (1 klst) og stutt var í tengiflugið til Charleston svo að ekki var miklum tíma eytt á þeim flugvelli, og var ég lentur í Charleston um kl 11:00. Þegar þar var lent bjallaði ég í Ormarr og bað um að ég yrði sóttur, en hann bað mig um það á móti að ég fyndi töskurnar þeirra, en þær urðu víst viðskila við hópin, rétt eins og ég. Ég fann allar töskurnar og þegar Francis Caroll, einn af mínum vinnufélögum frá Kanada kom til að sækja mig var ég klár með farangur minn og annarra.
Það rigndi, hellirigndi gersamlega, þegar ég kom til Charlotte en hitin var um 21° og manni fannst þetta eiginlega eins og að stökkva í sturtu, maður er nú eiginlega ekki vanur að rigningin sé svona hlý.
Næst var keyrt til Mount Pleasent álversins þar sem ég snæddi frekar sjoppulegan hádegismat og skoðaði steypuskálan, en það var í fyrsta skipti sem ég sé innviði steypuskála, með eigin augum. En þarna var stoppað frekar stutt (hjá mér) því að við þurftum að vera mætt út á völl kl 17:30 til að tékka okkur í flug til Cincinnati Ohio og þaðan áfram til Austin Texas.
Þetta gekk allt eins og það átti að ganga og ég setti meira að segja töskuna mína í farangurstékk þrátt fyrir slæma reynslu af því, en viti menn allt skilaði þetta sér á réttan stað á réttum tíma.
Á mogun förum við til Rockdale til að skoða meira af steypuskálum.
Hilsen...


Já þarna var ég víst allstaðar í dag......
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 06:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.11.2006 | 03:05
Þrautarganga sveitarmanns......
Staður: Four Points Sheradon Hótelið í Baltimore. Kl: 22:00 að staðartíma (03:00 daginn eftir á Rfj)
Þetta er hætt að vera fyndið!!!! Það er alveg með ólíkindum hvað ég er pollrólegur núna, þrátt fyrir það að ég hafi orðið viðskila við alla félagana og misst af tengifluginu til Charlotte. Og allt af því að reglur um handfarangur breyttust og einhverjir helv..... Svíar létu bíða eftir sér á Keflavíkurflugvelli. Nei það er nú ekki einleikið hvað þetta ferðalag er farið að verða, ja eigum við að segja, eftirminnilegt.
Ég ákvað það nefnilega þegar við tékkuðum okkur inn að setja ferðatöskuna með í farangur en ekki í handfarangur eins og áður hafði verið ákveðið, til að losna við þetta bévítans plastpokavesen í inntékkinu. En viti menn ekki nein þörf fyrir plastpoka sögðu hliðverðir flugvallarins og brostu sínu breiðasta. En ég var nú svosem ekkert að svekkja mig á því, það var eiginlega bara fínt að vera með eina tösku í handfarangri í staðinn fyrir tvær, en það var kanski pínu svekkjandi að hafa haft fyrir því að pakka 2 vikna birgðum af fötum í litla tösku sem átti að passa í handfarangur og setja svo töskuna bara í venjulega meðferð, en hvað um það.
Því næst fór ég inní vél og kom mér fyrir (það fór nú ágætlega um mann á buisness class) og beið svo eftir því að vélin færi í loftið, en þá var okkur tilkynnt það af flugstjóra að það væri verið að bíða eftir einhverjum svíum sem væru að koma með flugi frá Stokkhólmi. En maður var nú ekkert að svekkja sig yfir því, enda fegin að vera bara kominn um borð loksins.
þÞegar lent var í Baltimore fór ég ásamt mínum samferðarmönnum í inntékkið (yfirheyrsla um ferðatilgang myndartaka og fingrafarataka) og þaðan var farið til að sækja töskurnar okkar sem ekki voru í handfarangri. Og viti menn ég var svoleyðis laaaaaaaaaannnnnngggggsíðastur til að fá töskuna mína, og akkir félagarnir löngu komnir inní flugstöð til að tékka sig áfram.
Og loksins þegar ég var komin að bás US Airways þá var mér tilkynt það að ég væri of seinn og ég fengi ekki flug fyrr en um morguninn eftir kl 7:00 að staðartíma......... SHITTURINN.........
Ég reyndi nú að þrefa aðeins við manngarminn sem var þarna en ekkert gekk og hann bað mig vinsamlegast um það að koma aftur í fyrramálið, honum varð ekki haggað (örugglega einnaf þessum 200% týpum)
Þannig að nú sit ég hér á áðurnefndu hóteli, eftir að hafa fengið mér lambakjöt að borða (sem var alveg ágætt) og set inn þessa feikilegu ferðasögu ferðalangs..........
Hvað skyldi nú gerast næst..???
P.S. ég er víst hér.....
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2006 | 16:03
On the road again......
Staður: Keflavíkurflugvöllur Kl: 16:00 að staðartíma
Jæja nú erum ég farin af stað aftur eftir einhverjar tafir. Átti reyndar flug kl 13:00 en því var aflýst og því eru ég aftur í biðsal og bíðum eftir því að farið verði í loftið en það á að gerast kl 16:55
Ég held að fólk sem ferðast mikið vegna vinnunar á milli landa hljóti að verða ansi þreytt á svona dögum, eintómar frestanir og aflýsingar. En þetta er nú í ágætis lagi þegar svona dreifarar eins og ég eru á ferðinni, þetta er allt svo glænýtt!
Við sitjum reyndar hér fjögur saman og drepum tíman með því að spila Kana og það er skemmtileg upprifjun frá þeim tíma sem ég vann í Búlandstindi og spilaður var Kani í kaffinu uppá hvern einasta dag með félögum mínum þar. Það er reyndar ekki spilað jafn djarft núna og þá en oft var lagt af stað í Kana á Kongó með 11 í lægstu sögn.
Við komum til með að halda utanum skorið og sjá hver verður Kanameistari ferðarinnar.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)